laugardagur, nóvember 29, 2003

Kvöldið í kvöld... :D

Já... ég er að fara á jólahlaðborð í kvöld með "vinnunni" það er að segja Bakkavík, þetta á að vera árshátíðin, merkilegt. En allavega... ég er farin að hlakka svoldið mikið til sko :) það verður alveg feiki fjör. Ég má samt ekki vera á ballinu, mér var tilkynnt það í gær... helvítis desembera drusla!!! af hverju er desember ekki svona eins og janúar fyrsti mánuðurinn í árinu?? þá væri ég lööönnngu ogðin 18ára, meira að segja orðin leið á því að vera 18 ;) það er ég alveg viss um sko, en það eru 26 dagar þar til ég verð 18ára, sum sé fyrir ykkur sem vitið ekkert þá verð ég 18 24.desember :D jibbí...

200.000 Nagbítar voru að trylla lýðinn á Ísó í gær og munu gera það aftur í kveld!!! Mig langaði nokkuð mikið til þess að fara, en fjárhagurinn leyfir ekki 2 djömm í röð, I you know what I mean ;) jólin að koma og sonna....
Það hefur örugglega verið veiki fjör sko....

en jæja ég ætla að fara að gera ikkað... kannski læra undir íslenskupróf??? já... það er algert must sko, mikið lesefni og 8 blaðsíðna próf, það sagði Emil kennari, þannig það er eins gott að standa sig í stykkinu. Eins og staðan er núna þá losna ég við 1 próf.. en ég á eftir að fá námseinkunn í uppeldisfræði, fæ hana á mánudaginn... best að vona það besta, samkvæmt mínum útreikningum þá er ég með 7.8 þar í námseinkunn :-/ en ég á eftir að fá einkunn fyrir ritgerðina frægu. Þannig það er enn von :) *allir að krossleggja fingurna*

Chio

föstudagur, nóvember 28, 2003

Dagurinn í dag er besti dagurinn í lífi þínu!.......

.....allavega í mínu lífi :p
Ég er skvo hoppandi-yfir-mig-upp-í-skýjunum-glöð! (.::neeei Sigurbjörg ég er ekki gröð ;) tíhí::.). Fékk þær glimrandi ÆÐSILEGU fréttir í dag, ég skal nú segja ykkur það, ég fæ að sleppa við lokaprófið í NÁT123 með lokaeinkunnina 8!!! Ég átti skvo alls ekki von á þessu! ég var fyrst ekki að fatta þegar hann Hallgrímur rétti mér miðann! En vá hvað ég var ánægð og fegin. (var nebblega 100% viss á því að ég myndi falla í þessum áfanga)...

En já nenni ekki að tala um þetta meira, ekkert svo skemmtilegt lesefni :p

Í nótt er ég svo að fara á næturvakt, er svoldið kvíðin :oS Vonandi gengur bara vel... Það er ball á ísó með 200.000 naglbítum og minz langar svoldið að vera þar. En vel frekar að græða pening en að eyða ;) Er svo "hagkvæm" :op.... (...eða ekki ;)...)

Svo ég fari nú aftur að tala um skólann, þennan yndislega skóla. Þá finnst mér svoldið skrítið að ég þarf bara að taka 2 lokapróf í prófavikunni (er nebblega búin með eitt) Þetta hefur bara aldrei skeð..oseisei

En vitið þið það að ég nenni ekki að skrifa meira...lanaði eiginlega bara að "monta" mig pínu :) :) :) :) Er að spá í að fara á Tröð og legja video, vil ekki treysta á það að það verði eitthvað í TV-inu í nótt.... kannski ég kaupi og gos og smá gotterí með :) aldrei að vita.....
En allavega skemmtið ykkur bara frábærlega í kvöld og á morgun, sama hvað þið eruð að fara að gera af ykkur bara eitt sem ég vil segja við ykkur sem eruð að fara skemmta ykkur .::Gangið hægt um gleðinnar dyr::.
Hilsen.....

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

komin af dauðadeildinni :þ

Jæja... ég er búin að fá úrskurð frá lækni, það er ekkert roslegt að mér en samt sem áður er einhvað að mér sem ég ætla að fara að ræða hér, bara að gleypa einhverjar pillur og vona að allt fari vel

Ég og Vera ætlum að skella okkur á körfuboltaleik í kvöld KFÍ er að fara að keppa við ÍR (karlarnir sko). Ég held að Benni frændi minn sé að koma að keppa með ÍR, hann er sko sá besti í liðinu... enda frændi minn

Uff... ég er svo ánægð ég þarf ekki að taka prófið í NÁT 103 ég fékk 8.05 í námseinkunn og er bara nokkuð sátt sko Ég er happy... ég er búin að fá að vita það að ég þarf að taka íslensku og stærðfræðiprófin.... það ætti að vera í lagi, ég er nokkuð tæp á því að losna við þýskuna og uppeldisfræðina en það er bara að bíða og sjá. já já það gegngur ekkert annað, nei nei.

Á laugardaginn er ég að fara á árshátið hjá Bakkavík allir rosa fínir og sonna, þetta er alveg 3 rétta máltíð og svo verður það Buff sem mun spila eftir matinn ég hvet alla til þess að mæta, ég held að þetta verði alveg hörku ball sko, djamm og djús

En já... það er best að fara að hætta þessu þarf að fara að líta aðeins yfir íþróttafræðina fyrir prófið sem er kl16, svo þarf maður að fara að kaupa "dópið" (lyfin) og svo ... humm... það var ikkað eitt í viðbót, já svo fara með auglýsingu í búðina og á shell... en allvega

Chio

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

hey allir að klappa fyrir mér ég kann að láta broskarla og sonna á færslurnar mínar það er ÆÐISLEGT.. I LOVE IT!!!

Testing, testing, TESTING!!!!!

okei... ég er að testa það hovrt þessir broskallar virka hjá mér, hvort ég sé eins minnug og ég tel mig vera en eg veit náttla EKKERT um það

En já í dag þá varð ég fyrir miklum vonbrigðum ég komst að því að ég þarf að taka stærðfræðiprófið.... og ég er strax byrjuð að vera stressuð... úff ... það er bara að leggjast yfir bækurnar, svo hugsa ég að ég þurfi að taka þýskuprófið líka... búhú
Svo er það læknir á morgun... ohhh... stress, stress, stress... kannski er allt í lagi með mig, vantar kannski bara vítamín... en kannski ekki og þá bara .... úff... stress, stress, stress... kannski er ikkað að mér!! ég meina hvað veit ég?? ég veit ekkert fyrr en á morgun...!!

En hey vá... þetta er alveg ömurlega leiðinleg og sorgleg færsla.. aji úr því að þetta er allt svo sorglegt þá held ég bara áfram að vera sorgleg, því minns saknar stelpnanna í fótboltanum samt verð ég að segja að það eru sumar sem ég sakna meira en aðrar. Því mar á orðið svo góðar vinkonur sem mar hittir eila ekkert nema á æfingum og já auðvitað í skólanum, þetta er erfitt líf.

Hey það er akkúrat í dag 29 dagar þar til ég á ammili þá verð ég sko 18ára.. jibbí!!!! Ég er mikið að spá í að hafa kaffi kökuboð fyrir vinkonur mínar þegar nær dregur afmælinu.. hvernig hljómar það??? hmmm????

En jæja ég ætla að láta mig hverfa .... ka búmm.. nei ég er hérna ennþá hehe...!! gabbaði ykkur!

Chio

Núna er ég ekki að plata ég er farin

Og nú er hann hér. Hann fjarstýrir þér, hann lætur þig sjá það sem er ekki hér, ekki líta við!

Halló, halló, halló!
Þá er þriðjudagur gengin í garð og sirka bát hálfnaður.. Er það ekki yndislegt?? ha?!
Ég er komin með svo MIKINN "námsleiða" er alls ekki að nenna að vera í skólanum. Þótt það hljómi ef til vill furðulega hlakkar mig til að fara að vinna. Það er engin svona "heimavinna" og plús þá fær maður borgað fyrir að vera þarna, ekki fær maður það í skólanum og seiseinei! þar verður maður bara að vera fátækur og telja aleiguna í klinki og vonast til þess að eitt lítið kraftaverk gerist og maður eigi fyrir ostaslaufu og ef til vill svala með... okei þetta er kannski ekki alveg svona slæmt en þetta er alveg á mörkunum að verða svona.... Mér finnst persónulega að maður ætti að fá borgað fyrir að vera í skóla, það er nú ALLS ekki ódýrt..... En svona er lífið, það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera námsmaður....

Það er bara heill hellingur að ske um helgina Byrjum bara á föstudeiginum þá er ball með 200.000 naglbítum (sem BTW er algjört möst að fara á ..), síðan á laugardeiginum er svaka Jólahlaðborð í Víkurbæ og ball með Buff eftir... Ég verð bara að gera kakó og elda lummur (s.s. að vinna á skýlinu)... síðan er sunnudagurinn örugglega rólegur hjá flest öllum og ég fæ þann mikla heiður að vinna í minni ástkærri búð. Svo eins og þið lesið er alveg nóg að gera...

Það kviknaði 2x í skólanum í dag! Mér finnst það svoldið merkilegt, að það kvikni 2x á sama deigi, en satt best að segja kviknaði ekki í. En brunakerfið fór í gang. Í bæði skiptin var það út af tilraun sem átti sér stað í efnafræðistofunni og í seinna skiptið var ég meira segja í tíma (en það var samt ekki ég sem orsakaði reykinn, ég var bara saklaus ritari...)

Æi ég nenni ekki að skrifa meira, er komin í kaf í einhverjum leikjum hérna á netinu. Hafið það bara gott í dag..
Hilsen....

mánudagur, nóvember 24, 2003

Jæja... heima... í eyðu :)

Hún Hildur Nát. kennari er veik eða ikkað blessunin og því er enginn náttúrufræði hjá mér, og ég er því í eyðu til að verða 15!!! Je minn.. ég hélt að ég yrði bara að húka á ísafirði þanngað til, en þá kom Óttar pog bjargaði þessu öllu ;) sum sé. hann var að fara heim...jibbí... ég fer samt aftur inneftir með honum kl13, þá fer ég bara að læra í Þýsku ;) ja ja ... svo skemmtilegt :D

Ég er búin að fá tíma á Shell, hvenar ég á að vinna og svona, ég tek við af henni Sigurbjörgu minni ;) hún er víst að fara að flytja til Húsavíkur :( *grát grát* ætli Rottumennið fari með henni?? ha Sigurbjörg ;) nei nei grín grín :D *LOL*
En ég er alveg búin að komast að einu.. það eru tvær stúlkur sem alveg gera lífið skemmtilegra, hjá öllum held ég bara!! Alveg satt... það eru þær Sigurbjörg og Mæja Bet!!! þær eru sko algert met ;) Hárkollur í anda 70áratugarins eða ikkað, kókosbollur og kennarar svo einhvað sé nenft á allt við þær hehe...magnað, hitti þær nebblega á shell í gær og ég hló lengi a eftir ;)

En já.. það var matarboð hérna heima á laugardagskvöldið og nammi namm það var svo gott í matinn, hann pabbi er snillingur í eldhúsinu. Æ love it ;)
en já... það er best að fara að hætta þessu

Chio

laugardagur, nóvember 22, 2003

jedúdamía!

Skvo Guðbjörg, ég er hérna daginn inn og daginn út;) að vinna í þessari síðu og svo kemur þú bara hérna eins og einhver stormur og ruglar öllu! Ég er oft marga daga að laga allar skemmdirnar sem stormurinn Guðbjörg skildi eftir ;) Þetta bara gengur ekki :)

Líkt og Guðbjörg, var ég að vinna í Víkurbæ að þrífa í gær, rosa stuð :) Vantaði samt tónlistina, því þegar það er tónlist þá er allt svo miklu skemmtilegra. En þetta var samt ágætt, manni veitir ekki af því að læra að þrífa :)
Síðan þegar ég var komin heim gafst mér bara tími til að skipta um föt því að ég fór á Stuttmyndakeppnina með Gunnu Dóru, Közu og Hemma. Ég verð nú bara að segja alveg eins og er þá voru þarna nokkrar góðar myndir, hló allavegana. En svo er aftur á móti spurningin hvort ég var að hlæja að myndunum eða sætisfélaga mínum á hægri hönd (Gulla). Síðan eftir keppnina fórum við á rúntinn. Var nú talað, já seisei :) *Aumingja Hemmi*
Svo var kíkt á sjallan og diskó/ball *Notabene eftir að ég var búin að fara í sturtu kl 00:30 :)* Verð nú að viðurkenna það að það var ekkert svakalega gaman, en hún Sigurbjörg gat létt þetta aðeins;) langaði samt að hún tæki sprett en það gerði hún ekki, kannski næst;)

Í dag hef ég bara áorkað það að fara í vinnu frá 13:00-18:00, það skeði nú ekkert þar á bæ frekar en fyrri daginn ;)
Síðan kom ég heim og sofnaði, var vakin til að færa honum litla bróður mínum mat í vinnunni *hann er svo duglegur þessi eska;)* Horfði á Scorpion King, er núna í tölvunni en er samt sem áður að hallast að því að fara bara að sofa :) Er svo voðalega þreytt......

Jæja lömbin mín, ég kveð þá að sinni...
Hilsen......

Hún átti afmæli í gær ... :-/

já... ég skammast mín svoldið núna... næst elsta systir mín, hún Helga Björg átti afmæli í gær, og ég gat ekki skrifað um það hérna á vefnum, haldiði að það sé??? en allavega þá vitið þið það núna... HElsku Helga systir mín til hamingju með daginn í gær ;) hún var sko 22ára... orðin svo stór!

ég fór ekki í prufu fyrir leikritið, alveg satt.. ég bra gat það ekki.. eða fékk mig ekki til þess.. auminginn ég!! ;)

Ég gerði ekkert í gærkvöldi, var að vinna í Víkurbæ frá kl 16-19 og þá var alveg búin... þolið komið að þrotum...!! alveg agalegt sko!! :( ég hefði nú viljað fara á stuttmyndafestivalið!! en það er ekki allt hægt... mikil ósköp nei. Heyrði samt að það hafi alveg verið dúndrandi stuð.... !!!

En vá... mar þarf að fara að hætta.... það er matarboð hérna heima í kvöld, og það er eins gott að vera búin að gera sig klára í það ;) já já... gera sig sæta :þ

Chio

fimmtudagur, nóvember 20, 2003

je minn... !!

je minn... ég er sko alveg að farast :-/ doksi lét mig fá einhverja pillu og ég tók hana í morgun og er búin að vera drepast síðan.. helvíti!!!! Er búin að leggja mig eins mikið fram og ég get að læra undir stærðfræðipróf sem er á morgun, ég held að það muni ganga... krossa fingur ;) fer ekkert í leikfimi á morgun, fer bara yfir þetta líka þá!

Það eru einhver áheyrnapróf á laugardaginn fyrir sólrisuleikritið, ég er svona að spá að fara og ekki að spá í það að fara... veit ekki alveg hva ég geri... hmm.. á samt að skrá mig á ikkað blað á morgun.

Já eins og Vera sagði hérna fyrir neðan þá er herra Ísland í kvöld.. úúú... ég á samt minn herra Ísland hérna heima ;) tíhí :)
Ég ætla að horfa á það ef ég verð ekki sofnuð :-/ ansvítans

Gugga er með einhverja kynningu í kvöld, það er að koma kona að kynna Enjo vörurnar... svo skemmtilegt, það vill svo heppilega til að ég á herbergi niðri þannig ég þarf ekki að vera til staðar, svo er ég líka veik!

Ég á að vera í Víkurbæ núna að þrífa, en ég mundi ekki meika það held ég, ég mundi detta niður dauð örugglega... það held ég nú! en jæja ég ætla að fara að nýta tímann í eikkað viturlegt svei mér þá....

Chio

Læra?? hva'er nú það! :op

Góðan og blessaðan daginn :D
Eru ekki allir voða happy í dag? Jólin á næsta leiti, myrkur allan guðslangan daginn og hjá skóla fólki eru prófin að fara að skella á....
Ég er reyndar í bara ágæts skapi :) Fékk að vita úr prófinu sem ég fór í gær, haldið ekki að kellan fékk 8,5! þetta gat hún! ha! :D Ekkert smá ánægð þetta þýðir nebblega það að ég slepp við lokapróf :) Sjibbííí....

Núna er ég að hlusta á Létt 96,7 og þar eru BARA spiluð jólalög :D Gunna Dóra var nebblega eitthvað að tala um það á sunnudaginn að þeir væru bara farnir að spila jólalög þar á bæ svo ég ákvað tékka á því og viti menn þetta var rétt hjá henni ;) Eeeen ég verð að viðurkenna það að ég er búin að slökkva á ´Létt, er ekki alveg tilbúin til þess að hlusta á jólalög strax, maður má ekki komast í jólafílinginn OF snemma :)

Já svo er Herra Ísland í kvöld :D úúú ég hlakka skvo til..... þó svo að ég eigi að læra undir próf ætla ég samt að horfa. Myndi hvort sem er ekkert geta einbeitt mér vitandi þess að flottir strákir væru í sjónvarpinu ;) I'm so Shallow.....

En ég ætla ekkert að hafa þessi merku skrif mín lengri, ætla að snú mér aftur að lærdómnum....
Lifið heil....
Hilsen...

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Tilhvers að vakna??

Hehe tókuð þið eftir því að Guðbjörg var að "gera" linka?? tíhí
Tókst ekki alveg hjá þessari elsku :) En þetta er allt að koma hjá henni.
Hún er meira að segja orðin svo mikill "netsmiður" að hún er búin að gera síðu fyrir hana Snotru sína (tíkin hennar).

Ég verð nú að viðurkenna það með pínu skömm að ég var ekki alveg að meika það að fara framúr í morgun. Líkaminn minn var bara "lamaður" og sagði bara þvert NEI! við öllum skipunum sem minn freki heili sendi.
En svo þegar kl var 10 mín yfir 7 varð ég að fara fram úr, varð að fara lesa yfir glósunar mínar. Þið kannski spurjið ykkur ef til vill "hvaða glósur?" efa samt að þið gerið það en hvað um það ég ætla samt sem áður að segja ykkur það :)
Ég var nebblega í prófi í morgun, meiri segja Sjúldómafræðipróf og mér gekk bara nokkuð vel. Veit samt ekki hvort það sé góðs viti því yfirleitt þegar mér finnst ég ganga vel gengur mér illa og svo öfugt. En þetta kemur allt í ljós í næstu viki eða fyrr =o)

Já Guðbjörg var víst búin að tilkynna ykkur það að pabbi minn átti afmæli á sunnudaginn (16.nóv) :o*
Var svaka veisla á laugardeiginum á Finnabæ. Fullt af atriðum, góðum mat o.fl. Bróðir minn (Höddi) söng til pabba lag sem Guðrún Sigurbjörns samdi textan (við bláuaugun þín). Þetta var svo flott, ég táraðist meira að segja. :) En þetta var lag frá okkur (börnum hans). En þetta var ekkert smá flott hjá stóra bró.
Ég hef reyndar ekkert meira um þetta afmæli að segja nema þetta var ÆÐISLEGT og vá gjafirna sem pabbi fékk. Hlakka til að verða 50 ;) tíhí eða ekki :op

En ég nenni ekki að skrifa meira. Því miður....ekki gráta....eða jú gráttu bara að vild....gott fyrir heilsun og sumir segja að það styrkir ónæmiskerfið ;)

Frímó eru að fara að byrja og ég ætla að rölta niður.....
Hilsen......

Tölvunördið ég ;)

Já... ég ætlaði að reyna að gera góða hluti hérna á heimasíðunni og setja link á hann Ívar ... en það gekk ekki alveg hjá mér :-/ uppzz..... en ég reyni að laga það.. eða allavega þá geri ég einhvað í því :þ
Já .. ég var að bú til heimasíðu handa tíkinni minni ;) hehe... váááá..... læt link hérna til hliðar því ég er svo dugleg ;) uhum...

Ég fór að vinna í gærkvöldi, í Víkurbæ, það er verið að þrífa þar núna... je minn það er sko skítugt þar, þá meina ég ógeðslegt... oj :þ

Ég fór til læknis í gær... það gekk bara fínt sko, þetta er fínasti karl... svei mér þá já. Svo var það blóðprufa áðan... úff það var hinsvegar rosalegt!!!! það var tekið blóð úr mér í 6 mismunandi stór glös... og oj.. það var agalegt, ég meiddi mig smá :( þegar kellan þurfti að hreyfa sprautuna þegar hún var að skipta um glas... ég ég lifði það af :) jæja... ég er hætt í bili... .vi ses

chio

mánudagur, nóvember 17, 2003

Í skólanum, í skólanum...!

Jæja þessi erfiða helgi er á enda!! Eða kannski ekki alveg erfiða allavega annasama!!! Ég er búin að vinna alla helgina og úff... vá... þetta er rosalegt, en samt verð ég að viðurkenna að þetta er gaman ;) hehe.... ég var að vinna á föstudaginn var kl18-22 og á á laugardaginn og sunnudaginn kl14-22... jájá... Svo var það náttla íþróttaskólinn kl11:30-13:00 alltaf jafn hressandi að taka þátt í honum !! :) en já ég var að vinna með Ástu á helginni á Shell og það gekk mjög vel bara við vorum svona í leiðinni að reyna að klára uppeldisfræðiverkefnið og eftir blóð svita og tár *smá íkjur* þá gekk þetta upp hjá okkur... og hann Fiffi flutti fyrirlestur *sko ég Berta, Ásta og Fiffi vorum saman í hóp* um Börn og stjúpfjölskyldur og gerði það líka svona þvílíkt vel, ég er allavega mjög ánægð með útkomuna sko, en allavega þá er ég mjög ánægð, en eftir fyrirlesturinn þá kemur hún Gósý bara með alveg þvílíkt leiðinleg komment fannst mér... það áttu allir að taka þátt í fyrirlestrinum og bla bla bla....!! Usss... ég tek ekki þátt í svona vitleysu ;)

En já... Pabbi hennar Veru átti afmæli í gær, hann Snorri og var hann 50ára. Til hamingju með það ;) Vera segir ykkur frá því öllu næst þegar hún skrifar, vitið til ;) já já....

Já... ég er að fara með Snotru, dóttur mína, á hlíðnisnámskeið!! já já... við mákonurnar, ég og Svala, ætlum með tíkurnar okkar á hlíðnisnámskeið og prófa þær í snjóflóðaleit... ekkert smá gaman ;) ég hlakka til... jájá ... svo skemmtilegt

Hey Eva.. just so you know, þá er Mæja Bet og Sigurbjörg alveg á fullu í því að æfa sig í kókosbolluáti.... þetta er allt að koma hjá þeim.. uhum... ;)

Chio

fimmtudagur, nóvember 13, 2003

Fallin með 4,9 =o)

Góðan og blessaðan daginn allir saman

Þessi dagur er búinn að vera pínu skrítinn, mér finnst það allavega. Hann er samt ekkert búin að vera skrítinn á slæmann hátt. ó neineinei!

Fór í NÁT103 próf í dag og gekk það ágætlega. Segjum bara að mér gekk vel þangað til annað kemur í ljós ;) Síðan í gær fékk ég sms, var ekkert smá glöð. Fæ svo sjaldan sms En allavega þá var ég að fá einkun úr Líkamsbeitingu og haldið ekki að ég hafi fengið 9, þetta gat ég.

Vitið þið hvað? vitið þið það? ég fór í plokkun í dag, jeeei Ekkert smá ánægð. Það er alltaf gaman að gera eitthvað fyrir sjálfan sig þó svo að það sé bara svona oggupoggupínuponsu hlutur eins og að fara í plokkun. En aðalástæðan fyrir því að ég fór í plokkun er sú að pabbi á afmæli á sunnudaginn, meiri segja stór afmæli, og það er svaka veisla á laugardeiginu
Amma og Afi (foreldrar mömmu) komu í dag Mér finnst svo gaman að hitta þau. Það eru að verða komin tvö-þrjú ár síðan þau komu síðast hingað vestur. Þannig að það var eiginlega tími til komin að þau kæmu

Mér finnst Guðgjörg nú bara hörku "göngutúra manneskja" (ef það er þá orð ). Þú ert ekkert smá dugleg eskan!


Hmmm... ég hef eiginlega ekkert meira að segja svo ég mun hætta að kvelja ykkur í bili
Hilsen......

Jólin, jólin, jólin koma brátt :)

Já ég er dugleg í dag :D alveg satt!!!!
Ég fór í það að taka til í herberginu mínu, nota bene ég er ekki búin sko!!! ó nei hósei ;) Ég sko var að þrífa gardínurnar og gluggana ryksugaði þar sem ég haf aldrei ryksugað og ikkað ;) úfff..... ;)
Svo fór ég í þennan líka rosalega göngutúr með Bertu og tíkunum!! Takk fyrir það Berta mín :* svo kom ég heim þá þurfti ég að fara með Önnu í smá göngutúr!! almennilegt...
Núna er ég svo að fara að passa Önnu Margréti, roslega er mikið stuð í lífinu mínu ;)

Hey þið verðið svo endilega að óska Veru til hamingju með vel unnin störf í þágu síðunnar ;)

Chio

miðvikudagur, nóvember 12, 2003

Þau eiga afmæli í dag.....trallalallalaaaa....

Hellú gott fólk!

Vil ég byrja á því að óska stöllu minni og Gunnari til hamingju með daginn!

Ég skal nú segja ykkur það, ég búin að vera SVOOO dugleg við að bæta við linkum og setja myndir og sonna að hálfa er hellingur Ég er bara nokkuð stolt af sjálfri mér og já ef þið þurfið endilega að vit það þá á ég mér ekkert líf

Jæja Guðbjörg mín svo ég þarf að kenna þér þetta aftur, þú ert verri en mamma!! (ekki illa meint mamma mín).

Ég ætla ekkert að blogga mikið, þó svo að ég sé eiginlega ekkert búin að blogga upp á síðkastið. Þarf að fara að lesa aftur yfir glósunar í NÁT, er að fara í próf á morgun. Meira að segja sama próf og Guðbjörg

Læt þetta nægja í dag.... lifið í lukku en ekki sultukrukku...
Hilsen....

Love is in the air!!!

Já... í dag þann 12.nóvember er akkúrat eitt og hálft ár síðan ég og Gunnar byrjuðum saman :D það er svo yndislegt :)

En já... það er náttúrufræðipróf á morgun... jei jei. ég er í pásu núna frá því að læra, duglega ég :) mér finnst það, svo kemur það bara í ljós á morgun hvort lærdómurinn hafi gert sitt gagn ;) ó sei sei já!

En allavega þá var Vera búin að sýna mér hvurnig ég átti að fara að því að láta broskarla á síðuna en einhverra hluta vegna þá er ég búin að gleyma því, hvernig það var gert.... :( úbbs.... eða ég man hvernig það var gert, man bara ekki slóðina, og ef ég íti þar sem Tinna sagði mer hver slóðin er þá frýs tölvan, druslu drasl

Choi lærdómurinn bíður, síður, klíður

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

Myndir!!! Já herrar mínir og frúr við vinkonurnar vorum að láta myndaalbúm hérna á síðuna... sem er auðvitað alveg 100% nauðsynlegt ;) ekki satt?? Það er nú eiginlega bara 1 mynd komin inn.... en þær eiga eftir að verða fleiri! ó já ó já!!!

mánudagur, nóvember 10, 2003

Ekki geyma það til morguns sem þú getur gert í dag!!!

jé ég var að lesa mail sem ég fékk frá Sigga *kærasti Ellýar systur* og mömmu, þar var verið að tala um það að þú átt að gera það sem þið getið í dag í dag ekki geyma það þar til seinna!! Ég er alveg sammála því... Þannig ég skora á ykkur öll sem lesið þetta : Faðmið þá sem þið elskið eða þykkir vænt um og segið þeim það, það er ekki erfitt bara að segja ; ég elska þig EÐA mér þykir vænt um þig okei?? Þið geið þetta fyrir ykkur ;)
En nóg af þessu bulli ;)

Föstudagskvöldið var mjög rólegt hjá mér sko, horfði á Idol og ég var ekki sátt!! Pfff....!!! Svo fór ég smá á rúntinn með ástinni minni :* love you!! ömmm...... já.....

Á laugardaginn þá reyndi ég að læra eins mikið og ég gat!! Já já , en nei! ég fór ikkað að taka til og sonna, fór svo í göngutúr með Snotru og með pabba uppá Skálavíkurheiði, svo var pabba gefinn hestur, sko lifandi, já já pabbi er orðinn hesta bóndi, þar til það kemur snjór. Þessi hestur er nefnilega nokkuð mikið haltur greyið og þegar það kemur mikill snjór og frost þá mun pabbi skjóta hann og fara með til Skálavíkur handa tófunni sem hann ætlar líka að skjóta, hann er villimaður hann pabbi ha??!! ;) hehe... en á laugadagskvöldið gerði ég mjög lítið, ég nenni aldrei neinu og er alltaf svo geðveikt þreytt, enda ætlar mamma sem er nota bene staðsett í Hollandi að senda mig til læknis til að mæla blóðið í mér ;) elska hana mömmu mína! Kannski getu Vera sjúkraliði mælt blóðið í mér ?? ;) ha? en á laugardagskvöldið var bara enn og aftru rúntað og sonna, svo bara heim í kertaljós og kósí :D

Sunnudagurinn var alveg MAGNAÐUR!! Ég fór í íþróttaskólann kl hálf 12 til kl eitt!! Það eins og alltaf var alveg frábært, það er svo gaman að sjá krökkunum fara fram að gera ýmislegt! En kl2 þá byrjaði fyrsta vaktin mín á Shell, hún gekk bara nokkuð vel þó svo að ég hafi ÓVART ætlað að láta einn mann borga 131.000 eða ikkað svoleiðis... .úppss ;) svo var það að eftir kl20 þá kom ekkert rétt útum munninn á mér!! Ekki neitt en það var náttla bara fyndið ; Faktorshúsið er á móti Karitas... Kvurslags meðferð er farin með... og alveg svona langt fram eftir götunum, ég held samt að einhvað af fólkinu hafi haldið að ég sé geðveik ;) eða ikkað álíka ;þ

En vá ég er búin að skrifa alltof mikið hérna!! VERA MIG LANGAR Í BROSKALLA :( Vera bjargar öllu :þ

sunnudagur, nóvember 09, 2003

Nú líður að endalokum!

Já kannski ekki alveg svo dramatískt og þó....
Þessi helgi er að verða búin aðeins nokkrir klukkutímar eftir af henni.
Ég veit ekki með ykkur en mér finnst þetta pínu sorglegt....

Hjá mér er helgin búin að þjóta fram hjá mér, allavega finnst mér ég ekkert búin að gera baun í bala. Þetta er agalegt, ég sem ætlaði að vera svooo dugleg...
Föstudagur var horft á Idol og ég var svo svekt, ekki það að stelpurnar sem unnu voru ekki góðar söngkonur, heldur langaði mig svo að strákarnir kæmust áfram þeir einfaldlega bræddu hjarta mitt En svona er veröldin grimm
Laugardagur fór í það að vinna fá 12:00 - 18:00. Ég verð nú að segja alveg satt, Maggi og Inga Lára eru stórskrítin en á góðan hátt. Það var allavega MJÖG gaman í vinnunni, sem reyndar skeður ekki svo oft. Síðan skellti ég mér á dansi ball með Bertu og Hirti. Það var svo gaman! Vá Við dönsuðum alle natten og ég var bara í svo góðum gír, þetta var bara æðislegt...
Í dag,sunnudag. Er ég ekki búin að gera neitt. Þetta er agalegt

Jæja nenni ekki að skrifa meira...
Jú eitt sem mig langar að skrifa. Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir er orðin Shell-gella! Til hamingju með það skvíz
Hef þetta ekki lengra í bili...lifði heil en ekki hálf...
Hilsen.....