föstudagur, desember 24, 2004


Jólakveðja...
Í skemmtilegum tilgangi höfum við, gyðjurnar víðfrægu, ákveðið að gera eina sameiginlega færslu, í tilefni jólanna :)

Við óskum öllum lesendum okkar nær og fjær, til sjávar og sveita gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með von um gott lestrarár framundan ;)
Takk fyrir okkur, þið traustu og áreyðanlegu lesendur ... þúsund kossar úr höfuðborginni og sjávarþorpinu :)

Guðbjörg og Vera Posted by Hello

þriðjudagur, desember 21, 2004

Það er útlit fyrir flug...!

Jebb ég á að mæta kl. 10:45, ég er samt ansi hrædd um að það verði læti í vélinni, hoppugangur og svoleiðis vitleysa, Ég hata það! Ég veit samt að Geir vinur minn sé mjög ósammála mér í því ... því meiri læti og óveður, því betra og skemmtilegra! Svo segir hann.

Ég er að deyja ég er svo spennt að komast suður en samt er ég pínu oggu lítið kvíðin að vera ekki hjá mömmu né pabba! ég hef prufað ein svoleiðis jól, þá bjó mamma í Færeyjum og pabbi lá á sjúkrahúsinu á Ísafirði, þau jól voru erfið ef ég á að segja alveg eins og er... en það er langt síðan, tímarnir eru aðeins öðruvísi núna. Núna veit ég að báðum foreldrum mínum líður vel og öllum þeim sem ég verð ekki nálagt um jólin. Ég mun hafa það gott hjá stærstu systur og fjölskyldu hennar, svo mun hún Helga Björg örugglega skjóta inn kollinum :D ahh ... þetta verða góð jól, ég finn það á mér ...

Allir, reynið að hafa það sem ALLRA best yfir jólin og alltaf, það er sóun á tíma lífsins að láta sér líða illa :* Luv

mánudagur, desember 20, 2004

Aflýst ...

Flugfélag Íslands segir :
flugi AFLYST í dag. ATHUGUN á morgun kl. 09:30 ...

Mín er pirruð, reið, brjáluð , sár döpur og ekki viðræðuhæf.

takk fyrir

Helv... alltaf sama sagan!

usss ... ég á ekki til orð ég á að vera farin til Reykjarvíkur og það er athugun kl. 14:30, ömurlegt!! Það á víst að læga núna síðdegis, það er eins gott að það gerist annars tapa ég mér ... Ég vil komast suður til systra minna og fjölskyldu ;) plís plís verði flogið, verði flogið plís ...
Biðjið með mér ;)

Ég á samt eftir að sakna ykkar :*

Myndir frá laugardagskvöldinu eru komnar inn my friend!! Þetta eru ritskoðaðar myndir ... ;) Þetta kvöld var mjög skemmtilegt og við Gydjunar þökkum öllum fyrir góða samveru! Þessi síða er styrkt af SMIRNOFF ...  Posted by Hello

sunnudagur, desember 19, 2004

Þetta er BARA fyrir Guðbjörgu........

..........af því að hún er veik

Jæja svo jæja sagði kötturinn og fór að hlæja!
Vissuði að jólin eru alveg að fara að koma? Jii mér finnst þetta ekkert smá skrítið.... Ég held í fullri alvöru að ég sé næsti Grinch!! Ég finn ekki þenna jólafíling, ég hlusta á jólalögin eins og einhver vitfirringur og er búin að þrífa og skreyta inni hjá mér. Mamma er búin að baka og þau eru að skreyta akkúrat í þessum töluðum orðum. En ég! Ekkert, nata, notthing! Eins og ég segi, I am the Grinch. Kannski er ég bara ekkert búin að ná því að það séu að koma jól. Ekki það að ég sakni þess að fara í próf en það var svona viss áfangi á undan jólunum og vera komin í "jólafrí" þó svo að maður væri að vinna um jólinn. Þá vissi maður að það væru að koma jól, en núna er ég bara að vinna. Það er ekkert svona "hint"að það sé að koma jól og þau eru nú bara á næstu helgi!

út í eitthvað annað......

Fór í afmæli í gær hjá Helenu og Stebbu. Þrusu stuð, Karókíí og læti Meira að segja varðeldur sem sumir (nefnum engin nöfn) voru eitthvað að fikta við að búa til
Guðbjörg var rosalega dugleg að taka myndir, enda er hún virki bloggarinn á þessari síðu
Upp úr eitt var skellt sér á Flateyri og jammað. Ég helti niður fullu glasi af bjór yfir sjálfa mig, geri aðrir betur! (Helena ég skulda þér enn þá bjórinn )

Svo hefur dagurinn í dag farið í það að blóta húðhreinsunni sem ég fór í á miðvikudaginn, er örugglega komin með einhverja sýkingu sem ku heita kossageit. Fer til Dr.Saxa á morgun og fæ úr því skorið. Langaði ykkur ekki að vita þetta

Jæja nenni ekkert að skrifa meira, ætla að fara og viðra Heklu og dúlla mér.....
--{-@ *Baci* @-}--

E.s Láttu þér batna litla krúsímúsídúllan mín

þriðjudagur, desember 14, 2004

100 atriða listi ...

Blogginu barst bréf, þ.e.a.s. mér barst bréf áðan og það var skorað á mig og veru að gera svona 100 atriða lista um okkur ... já já ekkert nema gott um það að segja, kannski ég geri svoleiðis lista, við tækifæri .... en ég er hætt að blogga, ég blogga ekki aftur fyrr en vera er búin að blogga, allavega svona 3 sinnum ... eða tvisvar! eða höfum það þannig að ég blogga ekki fyrr en vera er búin að blogga og ekki orð um það meir ;)

Nokkrar, fáar, nýjar myndir ... ég fór með litlu systur að sjá þegar það var kveikt á jólatrénu hér í bænum, svakaleg upplifun. Allavega þá henti ég nokkrum myndum af þeim viðburði í myndaalbúmið. tjék it át ... Posted by Hello

Ja há ... ;)

Þennan afgreiddum við Jói á sjoppunni í gær ;)

pæling ....

... ef einhver kæmi til ykkar og færi að lýsa einhverjum einstaklingi fyrir ykkur og myndi segja eftirfarandi :

Hann er svo fallegur, sætur og góður ... en samt er hann líka svo ljótur.

Hvernig mynduð þið sjá þennan einstakling fyrir ykkur?

miðvikudagur, desember 08, 2004


Ég er sko villidýr ;) Posted by Hello

Stelpan ...

... vaknaði snemma í morgun sem er ekki frásögu færandi, nema hvað hún setti inn myndir í myndaalbúm okkar Gyðjanna :) Þær eru hérna til hægri, í þessu almbúmi ... Ég ætlaði að setja fleirir og eldri myndir þar sem vinir okkar og við gyðurnar komum við sögu, en ég kunni ekki við það þar sem eitthvað af þessum myndum gættu haft áhrif á ímynd fjölda fólks ;) hehe. ...


Allavega þá er ágætt að fara að sturta sig núna og fara svo að læra fyrir stjórnmálafræðina .. víí

þriðjudagur, desember 07, 2004

Já já ...

... þetta er skemmtilegt, Sigurbjörg er hérna hjá mér að skanna og það gengur svona líka vel hjá henni ;) uhum

Hugsið ykkur herbergið mitt er loksins komið í stand!! Ég flutti hingað í byrjun júni!! Allir kassar á bak og burt og allt saman komið í stand ... Það tekur sinn tíma að koma sér fyrir dömur mínar og herrar ...

u.. ég vil bara benda á það að sambloggari minn er á lífi ;) ég er bara eitthvað hyper í þessu bloggerí bloggi. góður :)

Sigurbjörg biður að heilsa ...

P.S.
Þýskuprófið var lúmskt í morgun, ef ég fell, þá fell ég á lúmskan hátt!

Hamingjusöm....

... það er ótrúlegt hvaða hlutir geta gert mann hamingjusaman! Akkúrat á þessari stundu er að brjótast mikil tilfinning innra með mér, hamingjutilfinning sem er í bland við létti :) Jú góðir landsmenn nær og fjær, stelpan náði NÁT 123 ... takk fyrir pent. Ég fékk 5, sem er nokkuð gott, en kannski ekkert endilega einkunn sem maður ætti að vera stoltur af :-/ en hey, ég náði. Ég náði prófinu sem er búið að halda fyrir mér vöku síðustu næstur ... vei ... loksins get ég sofið

Gullmolinn minn hún Mæja Bet á afmæli í dag. Elsku Mæja Bet til hamingju með daginn og hafðu það gott þarna á Írlandi :) Love you and miss you :*  Posted by Hello

mánudagur, desember 06, 2004

Smá oggu pínu pása ...

hafið þið lent í því ...

... á prófi að lesa yfir spurningarnar og vita ALLT??! Ég var í prófi í morgun hérna í gamla skólanum mínum, Grunnskóla Bolungarvíkur, að tala sálfræðipróf í fjarnámi. Ekki nóg með það að þegar ég las spurningarnar á prófinu þá vissi ég eitthvað um allt það sem var spurt um. Vandinn var bara sá í þessu prófi að ég kom ekki orðum að því sem ég vildi koma frá mér! demn ... ég skrifaði og skrifaði um allt það sem ég vissi, ég vona að það hafi bara komist allt til skila ;) Tvö próf eftir ... ahh ... eða kannski þrjú, úr því að ég er 99% viss um fall í Nát123. en það er ekki heimsendir, tek það bara aftur og næ :) en ef ég næ svo ekki þrem !! hvað þá ... aji, ég blikka þá bara hann Kristinn ;)

Stelpan komst ekki í vinnu í gær og fór heldur ekkert út á laugardagsKVÖLDI var bara heima vegna eymsla í maga, mikill verkur þar og óþægindis tilfinning ... ekki gott ! en ég er víkingur og er svona eiginlega búin að jafna mig.

Ég ætla að fá smá útrás í þrifum núna áður en ég fer og fylli heilann af þýsku kunnáttu ... mikið grín og mikið gaman HAHAHA (Grínverjalagið með Ladda klikkar ekki;))

Lifið heil dúllurnar mínar ... skrifið svo endilega í gestabókina, að maður þurfi að biðja um þetta er til háborinnar skammar, meira að segja mamma (Elsa Jóhannesdóttir) er búin að skrifa í hana ;) bara grín mamma mín :*

sunnudagur, desember 05, 2004


Orðin hjón :-D  Posted by Hello

Jáh! Ég skal segja ykkur það. Bróðir minn kann skvo að koma manni á óvart. Í gær vorum við mamma, pabbi og ég að fara í mat til Hödda og Ewu. Foreldrar Ewu eru nebblega að fara til Póllands eftir helgi. Við héldum náttlega að þetta væri bara svona venjulegur kveðjumatur. Jáh, neinei....allt í einu var sýslumaðurinn mættur í öllu sínu uniformi. Ég bara whaaaat! Svo tilkynnti Höddi okkur að þau væru að fara að gifta sig. Ég vissi ekki hvaðan stóð að mér veðrið. Var alveg orðlaus. Meira að segja táraðist :) Það voru allir orðlausir. En váá hvað ég var ánægð :-D Posted by Hello

föstudagur, desember 03, 2004

Akkúrat!!!

Jáh ... ég ætla ekki að tjá mig um prófið sem ég var í í morgun, btw þá gekk mér ÖMURLEGA og ég býst ekki við neinum kraftaverkum, þó ég biðji til Guðs á hverri mínútu þess efnis að ég hafi verið heppin og náð :-/ :)

Það er smá gleði fyrir þennan dag, ég var að panta farið mitt suður til fólksins í Reykjarvíkinni :) ég fer 20. des og kem afur 27.des. já krakkar mínir ... þið þurfið að koma kortunum til mín, en það er fínt að eitthvað bíði mín þegar ég kem heim ;)
Já, vel og minnst, kort ... ég mun ekki senda kort í ár ... allavega takmarkað upplag af þeim. Ef þú færð ekki jólakort frá mér, þá biðst ég afsökunar og óska þér bara gleðilegra jóla hérna á síðunni ;) hehe ...

Annað gleðilegt ... ég náði rekstarhagfræði, takk ;)

fimmtudagur, desember 02, 2004


Við erum bestust, sterkust og frábærust ... það er og verður bara þannig, við erum ekki að fara neitt :) ef einhvað er þá erum við rétt að koma ... eða rétt að byrja :) Luv jú gæs  Posted by Hello

Ég er dauð ... gott sem fallin

Ég get ekki lýst því hvernig mér er innanbrjóst núna !! úff ... ég er BARA stressuð, nát 123 próf á morgun og ég er búin að vera að læra síðan klukkan 3 og man ekkert!!! ég man ekkert úr þessu og ég kann ekkert ... aji ...af hverju er ég að skrifa hérna?'


Ég man það ekki ... :-/

miðvikudagur, desember 01, 2004

Staðfesting

með þessari færslu ætla ég að staðfesta það hvað ég sé geðveikt ...... Skemmtileg að blogga svona oft á einum degi, kreisí ;) allavega það eru magicarnir algjörlega hrofnir úr líkamanum, ekkert eftir held ég. Allavega er ég orðin skuggalega þreytt, búin að tala við sjálfa mig í hringi um rekstrarhagfræði sem ég er svo viss um að ég klúðri :-/ vona samt sem áður það besta!
Svo er samræmt próf í íslensku eins og alþjóð veit, mér finnst það próf vitleysa enda er eg ekki búin að læra neitt fyrir það, fyrir utan þá íslensku áfanga sem ég hef tekið undanfarin ár ;)

Ég verð að láta hérna smá texta við eitt lag... okei, ég linka bara á textann, sem ég er barasta búin að vera með á heilanum síðustu daga ... vikur ... og mánuð ... ótrúlegt, þetta er nú fínasta fínt lag !

Ég skal sko segja minn hug ...

... ég segi nei,
ég segi svei,
ég segi nei,
ó svei ó svei!!!

Ég vil þetta ekki ... það er bara þannig og þetta er bara mín skoðun, það þarf ekki að endurspegla skoðun annara íbúa Bolungarvíkur! Sameining er ekki á borðinu hjá mér, það er bara þannig.

Og hvað?? og hvað ...

Hey fólk

það eru svo mikið sem 23 dagar þar til ég á afmæli !! :) víú ... það er alveg ótrúlegt, ætli það muni einhverntíman eldast af manni þessi tilhlökkun? Að hlakka til þess að eiga afmæli? Jah ... maður spyr sig.


Engin hætta ... engin hætta

:) íslenskuprófið var ekkert mál ... ég þarf aldrei aftur að fara í íslensku sem skylduáfanga, þetta er æðisleg tilfinning.
Það er samræmt stúdentspróf í ísl á morgun, ég hef engar áhyggjur af því. Það er ekkert mál. Ég er nú bara að læra fyrir rekó próf hjá Agó sem er á morgun ;) ég þarf bara að fara vel yfir reikningsdæmin, ég er því miður með þá veiki að geta ekki lært stærðfræði, ég er ömurleg í stærðfræði ... það er sko satt! en jæja jæja ...

Ég labbaði svona sirka tvo hringi um bæinn í dag, Magic-arnir voru sko ekkert að yfirgefa líkama minn, ég er búin að vera hyper í allan dag, þar til núna, núna er ég orðin þreytt. Ég líka var að rembast við að sofan í gær að verða 02 eftir að hafa drukkið 3 og 1/2 Magic og svo kláraði ég annan í morgun, áður en ég fór í sund kl. 06, já ég og Sigurbjörg fórum í sund kl.06 í morgun, takk fyrir pent.

Ég var svona að spá áðan ... í þessum 2 hringjum í kringum bæinn hvort það væri ekki vani að flagga á Fullveldisdaginn?? það var flaggað á fimm stöðum, ég taldi sko ... það var ekki einu sinni flaggað hjá þeim á Völusteinsstrætinu sem flagga alltaf þegar einhver deyr!! kannski flagga þau bara fyrir einhverju sorglegu? en allavega ef ég hefði átt hús með flaggstöng í dag, þá hefði ég flaggað! merkilegur dagur ....

Heilinn og hugurinn eru búnir að vera á svo miklu spani í dag að það er ekki eðlilegt held ég ... hugurinn er búin að reika mikið... og margar pælingar skotið upp kollinum, ég ætla að bíða aðeins með það að blogga þær hérna upp, geymi það þar til seinna :)

Annars hef ég ekki tíma í þetta ... ég er að læra ...

HEY krakkar !!! ef einhver er að fara suður í kringum 20.des. plís led mí nóv ... ég þarf far ;) ætla að ath hvort ég geti sparað einhvern pening

Íslenska 503 ...

... jú ég er enn á fótum, sit hérna við skrifborðið mitt og les í íslensku um hinar ýmsu stefnur sem hafa verið við lýð í íslenskri bókmenntasögu frá aldarmótum 1900. Ég er búin að drekka einn og hálfan magic og er í þrusu tuði ;) þannig er það með mig að ég læri best á kvöldin og á næturna, þannig er ég bara ;) Ég vona og tel það víst að mér eigi eftir að ganga vel á þessu prófi, eða ég hugsa það :-/

Vissuð þið að hann Halldór okkar Laxnes var fyrsti íslendingurinn til þess að skrifa undir Súrrealisma ?? jáh ... ;)

En hey, ef einhver er svaka gáfaður og klár og ég veit ekki hvað og hvað í eðlis- og efnafræði (nát123) þá má sá hinn sami / hin sama ... hafa samband ;) fyrir föstudag :) víí ...

Sjáumst krakkar ... lifi prófavikan ...

mánudagur, nóvember 29, 2004

Ukendt Kunstner...................?

Jæja svo jæja sagði kötturinn og fór að hlæja! :)

Aldrei slíku vant er ég tóm í kollinum :o/ (haha....kaldhæðni er alltaf jafn skemmtileg :) ...)
Oh! mig langar svo að blogga eitthvað skemmtilegt.....fer bráðum að þurfa að fletta því orði upp í orðabók :) hehe... Neei okei þetta er ekkert svo slæmt. Er bara pínu sár yfir því hvað tíminn líður hratt! Mér finnst svo stutt síðan ég fékk hana Heklu (páskafríinu í fyrra), svo stutt síðan ég var í skólanum með til hlökkun til Spánarferðar 2004 og enn þá styttra síðan ég útskrifaðist! Þannig að mér finnst eiga MJÖG vel við að segja að tíminn líður hratt þegar gaman er!! :-D
Skvo mig! Ég gat gert þessa bitru byrjun að góðum endi :) hehe

Ég er þannig mannsveskja að ég spái og spöglera. Sambloggarinn minn getur staðfest það mæta vel :) Svo líður ekki sú stund að hugur minn reikar, um allan heiminn ef þannig liggur á mér :) En svo furðulegt sem það má virðast þá finn ég aldrei neitt skemmtilegt til að blogga um. Vil nebblega ekki deila með ykkur vitleysunni sem mér dettur í hug, þið skiljið ;)
Hafiði spáð í orðinu "vitleysunni"...... VITleysa......hmm.....að leysa vit......s.s. að losa hömlur vitsins...... spöglerið í þessu! :)

Jólin! Það er nokkuð sem maður þarf að spá og spöglera í, sérstaklega núna þar sem 1st í aðventu er genginn í garð.
Allt komið í gang á þessu heimili að príða ALLA glugga með ljósum sem kenna sig við jól. Nema náttlega "mín" herbergi. Afhverju? jú, það er ofur einfalt. Ég nenni ekki að þrífa gluggana :op

Dagurinn er svo stuttur hjá okkur á þessum tíma. Birtan er farin að dofna upp úr 13/14:00. Á þessum árstíma hlakka ég svoo til þegar "leyfilegt" er að setja jólaljósin í gluggana og á húsin. Það lýsir svo merkilega allt upp! Svo furðulega sem það virðist líður manni svo vel :)..................... Þó svo að mér líði vel þýðir það samt ekki að ég nenni að þrífa gluggana! Veit alveg hvað þið voruð að hugs, sérstaklega mamma! ;) hehe

Well......höfum þetta ekki lengra í bili. Má ekki ofgera ykkur í mínum "viturlegum" skrifum....

--{-@ *Kossar&Knús* @-}--

Gestabókin ...

... sko ég vil persónulega benda fólki á það að rita í gestabókina ... það er þúsund manns á dag sem kíkir á síðuna ;) eða svo til og enginn kvittar fyrir komuna, SVEI YKKUR, dónar!
Gestabókin er orðin ný og flott, enginn búinn að eyðileggja hana fyrir okkur ... ennþá ;)

Gestabókin er hér til hliðar .... træ it

sunnudagur, nóvember 28, 2004

Fyrsti í aðventu

... ég ætti að geta kallað mig jólabarn, þ.e.a.s. ég er náttúrulegt jólabarn ;) Fædd 24. desember (á aðfangadag) og er skráð fædd klukkan 18:13 ... ekki slæmt ;) en ég hef alltaf hlakkað mikið til jólanna, og líka afmælisins. Ef ég á að uppljóstra því hvað það er sem kemur mér í jólagírinn, þá eru það aðventuljósin og reyndar líka þegar ljósakrossarnir eru komnir upp í kirkjugarðinum. En þegar aðventuljósin eru komin í gluggana á húsunum í kring, þá er allt orðið magnað. Ég man þá tíð þegar ég var yngri þá gekk ég um götur bæjarins og taldi hvað ég sæi mörg aðventuljós, ef eitthvað hús var ekki með aðventuljós, þá vorkenndi ég því fólki og hugsaði : engin jól hjá þessum. En ég er komin til vits og ára og veit núna að það er sama hvar fólk er, sama hvernig fólkið er og sama hvort það sé með aðventuljós í glugganum hjá sér þá eru jól hjá þeim ;) Ellý það er eins gott að þú eigir aðventuljós og það verði í glugganum þegar ég kem um jólin ;) hehe...

Annarprófin byrja á miðvikudaginn, mér til mikillar, hvað skal segja, mér til mikillar furðu ... ég er búin að vera að bíða og bíða alla önnina að ég læri eitthvað að það gerist eitthvað. En nei, önnin er búin og ég að fara í lokapróf, næst síðustu lokaprófin í MÍ :) ekki slæmt

jæja ... við sjáumst fólk, elskið friðinn og gleðileg jól, má ekki fara að segja það núna?

föstudagur, nóvember 26, 2004


Vúhú! Cartoon Network in da house! :-D og já skjár einn og aðrir ;) hahahah Posted by Hello

þriðjudagur, nóvember 23, 2004


Í dag þá er þetta besti vinur minn, nei ég er ekki með d****u. Ég er veik :( kvefuð ... nefið stíflaðra en allt sem stíflað er og ég veit ekki hvað og hvað, ég verð samt komin á stjá á morgun í skólanum, vona ég ;) Posted by Hello

Fallega fólkið :) Ásgeir, ég, Valdís og Kristín á Stuttmundi rétt fyrir verðlaunaafhendingu ;) Ásgeir og Guðbjörg eru í fötum frá Jón og Gunnu. Valdís og Kristín eru í ekta beitninga og löndunargöllum frá Hafnarbúðinni ;) Posted by Hello

sunnudagur, nóvember 21, 2004


Ég held barasta að ég sé komin með vott að jólaskapi ;) Posted by Hello

Daginn í dag tileinnka ég afmælisbarni dagsins fallegu systur minni, Helgu Björg Hafþórsdóttur. Til hamingju með 23 ára afmælið elsku systir  Posted by Hello

Jáh ... Svona er hún Guðbjörg vinkona ykkar BARA mikill snillingur. Þetta er eða var síminn á Shell áður enn hann fór inn í pizzu ofninn ;) Í miklum asa þá lét stelpan símann á færibandið á ofninum og hljóp svo fram að afgreiða, svo var pantað pitsu og haldið þið ekki að síminn hafi farið í gegn, eða svona sirka hálfa leið!!! hver er það sem gerir líf ykkar litríkara? ÉG, Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir? Svo það sé einnig á hreinu þá er þetta list ;)  Posted by Hello

laugardagur, nóvember 20, 2004

Sá sem fremur kýs að brosa en reiðast ber ætíð sigur úr bítum.

Góðan dag gott fól!!! :-D
Jæja, eru ekki allir eeeeld hressir svona snemma morguns? (þegar þið lesið þetta er eflaust komið hádegi samt mjög líkalega kvöld ;) hehe)
Hjá mér er lítið að ske svo ég eyði tímanum á netinu. Búin að skoða ALLAR blogg síður sem við Gydjunar linkum á og meira segja kíkt á aðrar bloggsíður. Síða skellti ég mér á google.com og stimplaði nafnið mitt inn. Var skvo að ath hvort ég fyndi mynd af mér. Bara svona upp á djókið :) Ég fékk alls sirka 800 myndir af 201000 mögulegum. Nennti nú ekki að þræða fleiri en sirka 800 myndir, leiddist nebblega ekki svo mikið ;) Þó svo að ég rakst ekki á mynd af mér, sem mér finnst BTW frekar lame ;) Þá komst ég að svolitlu ekki merkilegu. Ég komst að því að það eru fullt af svona Rússneskum brúðum sem maður getur pantað af á netinu sem bera hið ætið fagra nafnið Vera :) Og fyrir þá sem eru alveg þjáðir af einmannaleika og langar í eitt stykki brúði getiði skellti ykkur á http://www.a-russian-bride.com ......Njótið ;) múhahahaha :-D
Vá! ég er með þvílíkan svefngalsa. Samt getur þetta ekki verið svefngalsi því ég er ekkert búin að vaka neitt lengi.....hmmm....þarf að skoða þetta betur.......ætli ég sé ekki bara með skrifræpu! :-D

Jæja nenni ekkert að hafa þetta lengra, ekki nema ég rekist á eitthvað sniðugt eins og A russian bride.com ;)
og ef svo leiðinlega vildi til að ég geri það ekki. Þá vil ég bara segja: Njótið dagsins vel, ég verð sofandi á meðan ;) múhahahahaha.....

--{-@ *Kossar&Knús* @-}--

föstudagur, nóvember 19, 2004

Stuttmundur... í kvöld!!!

Halló allir :)
Stelpan er bara alveg á fullu... það er verið að gera allt klárt fyrir stuttmund sem er í kvöld.

Það má segja að ef ég væri tík (þá sko tík á hundakyni) þá mundi ég hlaupa á afturfótunum ... svo mikið er að gera. Ef ég lít illa út þá er það bara vegna þes að ég er svo þreytt, ekki láta ykkur bregða. það er svo mikið að ske hjá mér.

Sjáumst í kvöld.

Vera gott gullkornum, um tómatana, fyrir daginn :)

Speki dagsins í dag er:

Tómatar eru í raun og veru ein tegund berja. Og þeir voru kallaðir ástarepli á 16.öld...

Gott veganesti fyrir daginn í dag ;)

--{-@ *Baci* @-}--

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

HÆJJJJ :):):):):)

OMG hvað skólinn var eikkað magnaður! sko ég byrjaði á að vakna og OMG hvað ég var þreytt! ég fór fyrst í REKÓ var þar bara að spjalla við Gunnu Dóru sætu vinkonu mín og Óttar sæta vin minn.... Svo var ég bara í langri eyðu, í fundartímanum sagði ég einhver nokkur orð og svo var Sossa elsku frænka mín :) með fyrirlestur, ég tók hann upp á video! ekkert smá dugleg .... :) ajii.... svo fór ég í sögu, við vorum sko í einhverjar 10mín. inni í tímanum, það er nebbla próf á morgun, OMG ég er ekki byrjuð að læra OMG!! :-/ Svo fór ég í hádegismat með Gunnari sæta kærasta mínum :*:*:*:* váaa... í íslensku vorum við bara að gera ritgerðina uppúr Sölku Völku, ekkert smá flott mar!! :):):) Þýskutíminn var líka bara nettur! ekkert smá fljótur að líða, ég fór náttla fyrr úr tíma, var að fara í sjúkraþjálfun!! ohh.. það var svo vont!! :(:(:(:(
Ég var ekki með neitt far heim þannig ég fór uppí skóla og beið þar eftir Jóa, jóa sæta :):):) *Dúlla* fékk far eftir honum og fékk far með honum heim. Ohh.... ég hef það svo gott, með tölvuna í fanginu, GEÐVEIKT, get verið hvar sem er í íbúðinni :):):) og það á netinu!!! Oh það er svo mikið að gera hjá mér :( verð að fara að gera eikkað ....
sííí jú!! :*:*:*:*


Óttar, þessi færsla var tileinnkuð þér... Gelgjurnar lifa :D
Annars er allt gott að frétta, þið eruð búin að fá góða lýsingu á deginum í dag ;)

Síðan má ekki gleyma Gunnndrrruu og Sjúkkunni :) Posted by Hello

Teiknimyndafígúrurnar: Bóbó og Stebbalína Posted by Hello

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Arg og garg.....

.......bara læti :p

Iss ég er ekki búin að blogga í 10.daga. Eina manneskjurnar sem kvarta yfir bloggleysinu í mér eru Guðbjörg Co-bloggarinn minn ;) og Karitas. How sad eru þær ;) hehe.... Neeei er bara að grínast dúllurnar mínar :* Luv YA!!!

Æji ég er bara aldrei í neinu stuði til að blogga. Ætli það sé ekki aðalega út af því að ég hef engu að kvarta yfir eða segja frá :o/

Jólin eru víst á næstu grösum. Fékk hjartaáfall þegar Guðbjörg spurði mig hvað ég vildi í jólagjöf! :-o Er ekki einu sinni farin að leiða huganum að þessu og hvað þá hvað mig langi í. Mamma er reyndar alltaf að þrýsta á mann að fara að taka til og byrja að þrífa svo það sé hægt að fara að baka og haft það gott í Desember. Líst alveg vel á þá hugmynd en það er bara enginn jólafílingur í mér. Hann fer eiginlega alltaf minnkandi ár frá ári. Ætli ég endi ekki með því að vera Trölli (dagur íslenskar tungu var í gær ;)...). Plús það að þetta verða furðuleg jól. Því ég verð að vinna allan desember, er s.s. að vinna jólin en fæ frí um áramótin :-D. Allt voða skrítið, vona bara að þetta verði gott skrítið ekki vont :)

Jæja nenni ekki að hafa þetta lengra ;) Reyni bara að blogga seinna.... :op hehe
--{-@ *Baci* @-}--

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Ég hata svona daga!!!

Ég hata daginn eins og dagurinn í dag er ... það er svo mikið að gera ein einhverra hluta vegna þá fæ ég mig ekki til þess að gera eitt né neitt! Það eru tvær ritgerðir sem bíða mín og ég nota það sem afsökun að ég veit ekki um Sölku Völku ritgerðina mína, þess vegna get ég ekki klárað íslensku ritgerðina. Ég ætla að skrifa um Vincent van Gogh í sögu en ég veit ekki hvernig ég á að setja hana upp og hvað ég á að skrifa... svo var ég að fá að vita það að ég þarf ekki að skila ritgerðunum fyrr en á mánudaginn, þannig AUÐVITAÐ fresta ég þessu öllu aðeins lengur.
Það er margt sem hægt er að gera á svona degi en fílingurinn er ekki til staðar!! usss... svona fólk

Ég vil nú minna á einþáttungakvöldið sem er á morgun og svo stuttmyndasamkeppnina sem er á föstudaginn, það er allt að ske, svo skemmtilegt :)

Af hverju nennir maður engu?

sunnudagur, nóvember 14, 2004


BARA fyrir þig stjarnan mín, Dibbí Hall. ég gleymi þér aldrei :) Stjarnan Dibbí Hall Posted by Hello

Nip/tuck

er minn þáttur! Þó svo að þetta sé svona pínu steypa og mér finnist þetta stundum svolítið kjánalegt þá er þetta snilldar þættir :)
Ég er nú búin að horfa á alla seríu 2 og ég verð að segja að hún er KREISÍ ... Geðveikt spennandi og svona .... úfff!!!!

Nip/tuck rokkar :)

Eddan...

... ég er ný komin heim úr matarboði hjá ömmu minni Guggu, það má segja að ég hafi verið í jólamat :) nammi nammi gott :Þ

Núna er ég heima, búin að koma mér fyrir framan sjónvarpið með ferðatölvuna og Sölku Völku, ég er nú aðallega að horfa á Edduna, ég verð eiginlega að segja það að mér finnst Eddan meira spennandi og skemmtilegri en Salka Valka og ritgerðin sem ég er að reyna að gera uppúr henni.

BARA GAMAN HJÁ MÉR :)

P.S.
Spaugstofan var kosin besta íslenska skemmtiefnið, mjög gott :)

hann er líka klikkaður :) karlinn hann pabbi... ég hef klikkunina úr mörgum áttum. þá sérstaklega frá pabba og mömmu ;) Posted by Hello

þar hafið þið það... ég hef klikkunina frá henni, þetta er btw ég og mamma mín :* elska þig mamma... Posted by Hello

Stelpurnar mínar, sem ég var að þjálfa. Þær fengu viðurkenningu fyrir góða frammistöðu eftir tímabilið sem ég var að þjálfa þær :) ég verð nú að monta mig svoldið, enda er ég alveg klassa þjálfari :) ekki satt? Posted by Hello

Fallegur hundur? Sá flottasti, enda tíkin mín :) Posted by Hello