miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Tímaeyðsla

Ég tók þetta af heimasíðunni hans Sigþórs gaurs ;) ... svarið nú. Þið hafið ekkert annað né betra að gera !

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?
2. Hve gamall/gömul ertu
3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?
4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?
5. Dreymir þig á nóttunni?
6. Hefuru séð lík?
7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?
8. Ertu að fíla Gogga Bush?

Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.
9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?
10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því. Hvað myndi það vera?
11. Treystiru lögreglunni?
12. Hlustaru á kántrí?
13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?
14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?
15. Myndiru deita mig?
16. Í hverju sefuru?
17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?
18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?
19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?
20. Hvað finnst þér best um mig?
21. Er ég hot?
22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?
23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?
24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.
25. Muntu endurpósta þessu
svo ég geti svarað þér?

1 ummæli:

Vera sagði...

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið? Neibb ekki svo ég muni. Og þó kannski svona opinn lofa á kinn ekki meira en það þó....

2. Hve gamall/gömul ertu 21 going on 22....

3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ? Frjáls eins og fuglinn

4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld? Nota nú yfirleitt áhöld en villimaðurinn kemur annaðslagið upp í manni við vissar aðstæður.

5. Dreymir þig á nóttunni? Jáh, stórfurðulega og skemmtilega drauma…

6. Hefuru séð lík? Jebb..

7. Hefuru óskað þess að einhver deyji? Neibb

8. Ertu að fíla Gogga Bush? Er það eitthvað ofan á brauð??

9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega? Skal láta þig vita þegar ég veit það sjálf…..tja svona la-la

10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því. Hvað myndi það vera? Oh það er svo margt sem enginn veit!...... LOL ;)

11. Treystiru lögreglunni? Tja það hefur ekkert á það reynt.

12. Hlustaru á kántrí? Ekki daglega neih, en ég slekk ekkert á útvarpinu.

13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér? Róleg! Þær eru alltof margar! Ljótt að gera upp á milli :)

14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera? Að ég þyrfti ekki að sofa. Maður eyðir alltof miklum tíma í svefn. Ekki satt.

15. Myndiru deita mig? Ef ég væri strákur eða fyrir hitt kynið. POTT ÞÉTT þú ert MILF ;)

16. Í hverju sefuru? Oftast með sæng og kodda...hitt er mitt að vita og ykkar að komast að ;) tíhí

17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda? OJ!! NEI!! Hver býr til þessar spurningar?

18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ? Tja fer eftir ýmsu......

19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag? Segja þér hvað mér þykir óendanlega væntum þig, hvað þú ert frábær vinkona og að ég elska þig! Síðan myndi ég falla í afneitun því þú ert besta vinkona mín. Svo myndi ég hringja og láta þyrluna mína ná í okkur og fara með okkur á flugvöllinn þar sem einkaþota mín biði okkar og við myndum fljúga um allan heiminn (aðrir nánir ættingjar væru velkomnir) og rifja upp gamlar en ÆÐISLEGAR minningar. Hlæja þangað til við myndum pissa á okkur nota bene á okkur en ekki í sundlaug – það er ÓGEÐSLEGT.... Myndum gera símat í fólki og hlæja meira. Fara á einkatónleika með James Morrison og Cold Play. Síðan myndi ég fara með okkur í spa þar sem allir hot hollywood gæjarnir myndu dekra við okkur.....gæti go on and on en þá yrði þetta lengsta comment sögurnar  hehe

20. Hvað finnst þér best um mig? Hvað þú ert æðistlega góð vinkona og geggjuð mamma! Hreinskilin! Skemmtileg!

21. Er ég hot? Ööö líttu í spegil og segð þú mér....Ert M.I.L.F M.I.L.F-ana ;)

22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn? Regnboginn

23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera? Albert Einstein og spurja hann hvort hann vissi ekki hvað hárgreiða væri...!

24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig. Hahaha..... þarf þess ekki veist allt!!!.......sem er frekar creapy ef maður hugsar út í það ;)

25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér? Tja þetta er á okkar bloggi, svo þú getur bara svarað þessu NÚNA!!! :)