sunnudagur, júní 03, 2007

Sjómenn til hamingju með daginn! :)

Nýta tækifærið og óska öllum sjómönnum til hamingju með daginn! ;*


Dagurinn í gær var virkilega skemmtilegur. Tókum þátt í róðrakeppninni sem Þrælarnir hennar Bertu. Fengum hrós fyrir falleg áratök - enda markmiðið að looka fyrst og fremst vel :) hehe... Síðan var bara fylgst með hátíðarhöldunum. Farið heim og tekið aðeins til því el kidoz kíktu á Traðarland 8 fyrir ball. Svaka stuð, ofcourse ;) Einnig var ölvun dulítil :op Ballið var ÆÐI, vá hvað Erobandið er skemmtilegt. Maður kunni barasta öll lögin :) Svo var líka stappað á ballinu, virkilega gaman :) Regína Ósk tók nokkrar myndir á vélina mína liggaliggalái ;)

Síðan eins og sannri sjómannsdóttur sæmir vaknaði ég hress kl 11:30 í morgun. Skellti mér í sturtu og fór í skrúðgöngu, kirkju og svo sjómannadagskaffi. JebbJebb ekkert nema hressleikinn á þessum bæ ;)

1 ummæli:

Ásta Björg sagði...

Takk fyrir frábært djamm :D hittumst aftur sem fyrst og REYNUM að endurtaka leikinn :D (Setti inn myndir á mína síðu :D)