miðvikudagur, júní 25, 2008

Pack your bags, we are leaving today...

Jáh, það er víst rétt. Við erum að fara til Póllands eftir c.a klst - eða sko á flugvöllinn, flugið er reyndar ekki fyrr en 15:30... Met setti ég, held að ég hafi bara pakkað mjög litlu, svona miða við mig. Það er örugglega mikið í margra augum en í mínum er þetta mjög lítið. Ferðin er svoldið spennó. Fer með móður, föður og svo ömmum mínum. Höddi, Ewa og tvibbarnir eru nú þegar í Póllandi  - búin að vera þar í 3.vikur. Einar bróðir og Hekla standa vörð um Traðarland 8 - veitir ekki af.
Skrítin tilhugsun um að ég sé að fara í launað sumarfrí, mitt fyrsta á ævinni. Merkilegt!
Ég reikna ekki með því að blogga á meðan dvöl minni erlendis stendur - enda er ég í sumarfríi! 

og svona eitt áður en ég posta þessari færslu þá var ég að fjárfesta mér í nýrri tölvu um daginn. MacBookPro varð fyrir valinu og vá hún er bara falleg. Tími eiginlega ekki að nota hana. haha!
Síðan fékk ég þær fréttir í gær að ég komst í fjarnámið í hjúkrun frá HA. Þannig að maður er víst að fara að setjast á skólabekk. Það er skrítin tilhugsun en tilhlökkunin er mikil. Gaman að vera loksins komin með einhverja stefnu. 

Jæja best að fara að loka ferðatöskunni, sem ég þarf ekki að setjast á svo það verði möguleiki! :)
Au revoir!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En gaman.. var að komast að því fyrst núna að þú værir líka að fara í fjarnámið! :)
Þetta verður bara gaman hjá okkur! ;)
Verðum að hittast eitthvað, allur hópurinn áður en við förum norður í ágúst.
Hafðu það gott í Póllandi :)
Kv. Eygló

Nafnlaus sagði...

Þú verður að fara að koma heim - ég hef áhyggjur af Einari... hann var að þrífa í gær.
MB

Nafnlaus sagði...

Oooo MacBook Pro er svoddan BJÚTÍ :) Til lukku með hana :)
kv.Gulla.