- ÉG BIÐ AÐ HEILSA
- Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
- Á sjónum allar bárur smáar rísa
- og flykkjast heim að fögru landi ísa,
- að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.
- Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
- um hæð og sund í drottins ást og friði.
- Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði.
- Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum.
- Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer
- með fjaðrabliki háa vegaleysu
- í sumardal að kveða kvæðin þín!
- Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
- engil með húfu og rauðan skúf, í peysu.
- Þröstur minn góður, það er stúlkan mín.
fimmtudagur, nóvember 16, 2006
Dagur íslenskrar tungu
Þann 16.nóvember árið 1807 að Hrauni í Öxnadal fæddist stórskáldið Jónas Hallgrímsson. Það er í dag, á afmælisdegi Jónasar, sem við íslendingar höldum afmælisdag hans hátíðlegan með degi íslenskrar tungu.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli