
Já góðir hálsar (og aðrir líkamspartar






Þessi helgi stóðst ekki helgarplanið mitt. uss, við skulum bara ekkert hafa hátt um það

Ég skal nú segja ykkur svoldið furðulegt sem ég heyrði á Bylgjunni í síðustu viku, minnir að það hafi verið á þriðjudaginn. Allavega það var maður í Afganistan sem var færður fyrir rétt fyrir að r**a asna!!! Hann hafði það sér fyrir málsbætur að hann hafði ekki efni á því að gifta sig. Það kostar víst 250.000 kr að kvænast þarna úti.(Hey! Guðbjörg pabbi þinn yrði nú bara slatti ríkur ef þið ættuð heima þarna úti



*dæs* ég er að hlusta á Bylgjuna og það er svona rólegt og gott eins og það er alltaf á sunnudagskvöldum. Maður hoppar nú bara aftur í grunnskóla í huganum við það heyra sum af þessum lögum :) hehe Er einmitt að hlusta á lagið Please Forgive Me með Bryan Adams akkúrat núna. Það var nú vangað við það lag nokkrum sinnum

Okei, af því að ég er í svo miklu stuði núna að miðla fréttum þá var ég að lesa þessa áðan:
Stephen Fogelman 8 ára gamla strákur sem gengur í skóla í Branson í Mississippi var rekin úr skólanum fyrir að kyssa skólasystur sína á kinnina. Skólayfirvöld sögðu þetta vera kynferðislega áreitni. Foreldrar stráksa reyndu nú að benda þeim á að strákurinn hefði nú enga hugmynd um það hvað kynferðisleg áreitni væri. Hann ætlaði bara að vera vinalegur við skólasystur sína og ekkert annað hefði vakað fyrir honum. En skólayfirvöld sátu fast við sitt. Ég er bara orðslaus!



Jæja ég nenni ekki að miðla fleiri fréttum til ykkar. Hef hvort sem er ekkert krassandi að segja

Eigið góða kvöldstund....
--{-@ * Hilsen * @-}--
Engin ummæli:
Skrifa ummæli